Kjara- og viðhorfskönnun BSRB

BSRB hefur samið við Capacent Gallup um kjara- og viðhorfskönnun meðal allra aðildarfélaga bandalagsins.  Hún mun verða ein af stærstu og veigamestu launa- og vinnumarkaðskönnunum landsins.  Félagsmenn BSRB mega eiga von á hringingu á næstu dögum og vikum þar sem þeim verður boðin þátttaka í könnuninni. Sjálf könnunin verður svo send rafrænt út í mars og mun gagnaöflun fara fram þann mánuðinn. Mikilvægt er að sem flestir taki þátt til að niðurstöðurnar nýtist félagsmönnum í baráttunni um betri kaup og kjör. BSRB hvetur því alla félagsmenn til að taka þátt í könnuninni. Sjá nánar

Deila á