Orlofshús í vetrarleigu – frábær upplifun

Hægt er að fá bústað Framsýnar á Illugastöðum leigðan  í vetur um helgar eða virka daga. Töluverð ásókn hefur verið í bústaðinn í vetur og þegar fulltrúi heimasíðunnar  kom við á Illugastöðum um síðustu helgi var verið nánast í öllum bústöðunum en þeir eru 32. Félagsmenn sem hafa áhuga á að fá bústaðinn leigðan eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Orlofsbyggðina á Illugastöðum sem sér um vetrarleiguna fyrir félagið fyrir utan páskana.  Síminn á Illugastöðum er 4626199.  Framsýn sér um útleiguna um páskana.  Töluverð ásókn hefur verið í bústaði stéttarfélaganna á Illugastöðum í vetur.

Deila á